Fara í aðalinnihald

sænsk heimsókn


Í dag fór Viktor Snær út í vagninn sinn í fyrsta skipti. Ekki eins rosalega kalt í dag og ég farin að lengja eftir að komast aðeins út. Við fórum öll fjögur og hittum Svante og pabba hans, Fredrik. Við hittum þá við eina brekku í hverfinu og strákarnir voru með sleðana sína... það er rosalegt stökkbretti í þessari brekku (sbr. mynd á blogginu hans Helga) og keyra þeir alveg steinkaldir yfir það. Eftir að búið var að púla í brekkunni bauð Fredrik okkur heim í kaffi og kanelbollur og þáðum við það auðvitað. Foreldrar Marks - sem er líka með Fannari á leikskólanum - voru líka í heimsókn svo þetta var bara nokkuð skemmtilegt. Ég reyni náttúrulega að blaðra eitthvað en ég finn að það er stundum doldið erfitt að hanga með í samræðunum ef ég missi einbeitinguna í smá stund. Skondið hvernig maður getur skilið svo mikið en eiga svo í erfiðleikum með að tjá sig og koma orðunum frá sér..... doldið pirrandi!!

Viktor Snær gerir lítið annað en að drekka, sofa og kúka :) Hann hefur meira að segja tekið upp á því undanfarnar tvær nætur að sofa alla nóttina... sleppir úr heilli brjóstagjöf þar sem hann er vanur að drekka á fjögurra tíma fresti. Við Helgi jafn hissa í bæði skiptin þegar við vöknum við hann undir morgun. Ég er reyndar farin að rumska aðeins á undan Viktori þar sem ég þarf nauðsynlega að losna við brjóstamjólk :o/

Ummæli

Nafnlaus sagði…
Frábært að heyra að allt gengur vel.
Helgi getur nú bjargað þér með mjólkina, hann er vanur því ;-)
KV Munda
Nafnlaus sagði…
Innilega til hamingju með strákinn, algjört krútt! Gaman að allt gangi vel hjá ykkur.

Kveðja Thelma, Jói, Rúnar Örn og bumbubúinn!!

ps. Rúnar Örn biður kærlega að heilsa honum Fannari!
Kamilla sagði…
Til hamingju með nýja meðliminn í fjölskyldunni. Hann er algjör krúttumoli!!! Ég vil sjá fleiri myndir sem fyrst:-)