Fara í aðalinnihald
Vorið er svo sannarlega komið til okkar :) Nú er gróðurinn allur að taka við sér eftir veturinn og er ekki langt þangað til það fer að springa út lauf á trjánum. Þetta finnst mér afar skemmtilegur tími ársins.
Mamma og pabbi voru hjá okkur í síðustu viku... voru í heila fimm daga. Við nutum þess í botn að fá þau til okkar og eins og alltaf líður tíminn svo hratt þegar það er gaman :) Annars voru nú mest rólegheit yfir okkur en ég náði þó að fara með þau tvisvar í stærstu IKEA verslun í heimi hehe.
Viktor Snær dafnar vel - í síðustu viku fórum við í viktun með hann og hann var þá orðinn 4890 gr. og 57 cm. (þá orðinn 5 vikna). Hann er byrjaður að brosa til okkar og er eitthvað að reyna að byrja að hjala.

Stutt blogg að þessu sinni - má ekki láta Fannar "stóra" bíða á leikskólanum... bless í bili.

Ummæli

Nafnlaus sagði…
Fengu þau að fara tvisvar í IKEA og Guðrún aldrei? Nei nei nei nú verður hún svekkt!!!
KV Munda
Sara sagði…
Já en Munda! Maður verður náttúrulega að geyma eitthvað til að skoða ÞEGAR maður kemur aftur :)