Fara í aðalinnihald
Þá er Helgi aftur byrjaður að vinna. Hann vinnur þessa og næstu viku og er þá (sem betur fer) aftur kominn í frí. Fannar er enn á leikskólanum en þetta er síðasta vikan hans.... svo barasta skóli í ágúst. Honum finnst þetta nú ekkert merkilegt og segist hann ætla að heimsækja leikskólann þó hann verði hættur þar :) Viktor er farinn að snúa sér á fullu og liggur hann ekki lengi kyrr á einum stað. Hann vill fá að vera með í öllu og rífur og grípur í allt sem er nálægt honum (uppáhaldið er að rífa í hárið á mér).

Á sunnudaginn buðum við vinum okkar í kaffi úti í garði. Það var æðislegt veður og sátum við því úti allan daginn - alveg frábært. Reyndar hefur verið mjög gott veður undanfarið. 25 stiga hiti og heiðskýrt.... næstum of heitt!! Ég er samt ekki að kvarta ;)

Ég þarf að drífa mig að setja inn myndir í albúmið... læt ykkur vita þegar ég drattast til þess. Þar til næst - bless bless.

Ummæli

Guðlaug sagði…
Já, endilega farðu að skella inn myndum ;)
Ég ætla að reyna að vera búin á eðlilegum tíma í vinnunni í dag og þá skýst ég heim og logga mig inn á skype-ið, mig langar svo að heyra í ykkur. Verðum í bandi!
Nafnlaus sagði…
Njóttu veðurblíðunnar; Helgi þarf þá allavegana ekki að vera í kjallaranum öllum stundum til að hita húsið ;).
Sara sagði…
hehehe.... til sælla minninga!! Það verður komið að því áður en við vitum af :)
Guðlaug sagði…
Ok, ég er bara aldrei búin snemma í vinnunni... þetta gengur ekki! Ég mun hafa samband fljótlega með einhverjum leiðum - hlakka til að heyra í ykkur ;)

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Arnar er í heimsókn hjá okkur núna
Aftur mætt á bloggið! Þá er Íslandsförinni lokið og ég hef nógan tíma til að sitja yfir þessu bloggi aftur. Það var nú mjög gott að koma heim aftur en þó líka doldið einmanalegt þegar ég fór með Fannar á leikskólann í gær..... aftur orðin ein! Edda vinkona er komin á fullt í vinnu þannig að það er ekki hægt að bögga hana lengur yfir daginn.... það er þó stutt í nýja fjölskyldumeðliminn þannig að það verður bráðum nóg að gera. Helgi er á fullu núna að pæla í bílakaupum.... ég kann ekkert á þessi mál þannig að hann grúskar einn í þessu - hann sýnir mér samt myndir bara svona til að fá samþykki mitt hehehe. Skilyrðin eru þó þau að við kaupum sjálfskiptan station bíl með loftkælingu. Erum með einn Opel Omega í sigtinu núna og fer hann líklega að skoða hann á morgunn.... spennandi! Það er strax búið að bóka gistipláss hjá okkur í febrúar.... endalaus gestagangur hjá okkur :) en það eru Raggi og Munda sem ætla að kíkja til okkar. Hlökkum að sjálfsögðu til að fá þau í heimsókn....
Eins og þið flest líklega vitið er litla prinsessan fædd.... lítil snúlla sem hefur fengið nafnið Sandra Ósk. Hún ákvað að drífa sig í heiminn aðfaranótt 3. október. Hún var að flýta sér svo mikið að ljósmóðirin sem tók á móti henni náði ekki einu sinni að skrá mig inn á fæðingardeildina áður en hún fæddist. Þessar ljósmæður verða alltaf jafn hissa hversu fljót þessi börn mín eru að koma í heiminn..... Fannar er rosalega stoltur af systur sinni. Nefnir nokkrum sinnum á dag hversu lítil og sæt honum finnst hún. Viktor aftur á móti hefur verið í smá baráttu um athygli en virðist þó vera farinn að sætta sig við hlutina núna. Hann er samt voða góður við hana og vill endalaust knúsa og kyssa hana. Allt gengur vel að öðru leyti. Sandra drekkur vel og sefur mikið.... alveg eins og það á að vera þegar maður er svona pínulítill. Hún er rosalega vær og góð.... algjör snúlla :) Fyrsta baðið - 6 daga gömul