Fara í aðalinnihald
Helgi er svo hrikalega lasinn núna. Annar dagur í veikindum og er hann ekkert betri. Hann er með svo rosalega mikinn hausverk og hita, beinverki og stundum ógleði. Étur verkjatöflur eins og sælgæti en ekkert hjálpar. Fannar var svo heppinn að vera boðinn í heimsókn til Svante. Ég var að rölta með hann yfir og mátti hann ekkert vera að því að kveðja mig :)
Nú er Viktor Snær kominn í fangið á mér. Hann er aðeins byrjaður að lemja á lyklaborðið.... finnst það mjög spennandi :) Hann vill skila þessu til ykkar "ðpþlðððððððððððððððlpækkkkkkkkkkkkkkkkk"
Kveð að sinni.

Ummæli

Guðlaug sagði…
Æi! Hvað er hann að vesenast að vera veikur í fríinu?!? Eins gott að þið haldið ykkur frá honum ;)

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Hitt og þetta

Langaði að henda inn nokkrum myndum.... Krakkarnir keyptu sér ný rúm. Helgi að setja saman rúmið hennar Söndru Tillbúið... eða næstum. Vantar bara skúffurnar undir rúmið. Sandra mjög sátt Næsta rúm sett saman Viktor líka sáttur. Hér vantar líka skúffurnar undir rúmið Sandra á sínum fyrsta leik vorsins. Missteig sig mjög ílla. Var mánuð að jafna sig en er núna komin á fullt i fótboltanum aftur Ég skaust i helgarferð til Köben á kóramót íslenskra kóra i Evrópu. Kórarnir æfðu saman och síðan voru haldnir kórtónleikar i kirkju við Strikið. Mótið endaði svo med svaka partýi um kvöldið Hér er hluti kórsins að fá sér bjór í einni pásunni Pabbi og Guðlaug sungu med Bergen kórnum. Hrikalega gaman að hitta þau .... með Völu, vínkonu í kórnum

Óskalistar

Sandra skrifaði óskalista í gær með fínu úrvali. Dýrir hlutir og líka minna dýrir hlutir. Fannar skrifaði líka óskalista... 2 hlutir... bara dýrir hlutir!! Hér er Söndru óskalisti :)

ég var að hangsa í tölvunni...

og fann þessa mynd... Fannar að vinna. Að þjálfa yngri krakka :) #stoltmamma