Fara í aðalinnihald

klukk!

Já - klukk er nýjasta bloggæðið þessa dagana.... og hefur nú Arnar klukkað mig!! Það þýðir að ég þarf að koma með 5 gagnlausar staðreyndir um sjálfan mig. Eehhh ok best að byrja:
  1. Ég hef ekki farið á djammið í 1,5 ár.... vá hvað það er langt síðan!
  2. Ég er með æði fyrir ristuðu brauði með hnetusmjöri og rabbarbarasultu...... já ég veit – ekki alveg það hollasta en ógeðslega gott!!
  3. Úra- og skóbúðir eru í miklu uppáhaldi hjá mér - því miður eru þetta ekki vörur sem maður kaupir sér vikulega hehe.
  4. Ég var að fá mér gymstick og ætla nú að vera ógeðslega dugleg að æfa heima í stofu :)
  5. Ég er að fara á Coldplay í byrjun nóvember..... jibííííí.

Jæja þá er þetta búið! Til að klukka nú einhvern líka þá klukka ég systur mína og mág. Guðlaug og Svenni.... kannski þið hafið eitthvað ennþá gagnslausara að segja en ég :)

Ummæli

Guðlaug sagði…
Uss! Sara, eitt og hálf ár!!! Þú verður nú að fara að gera eitthvað í þessu ;)
Nafnlaus sagði…
Það eru ógeðslega margar skóbúðir í Liverpool. Ég labbaði í gegnum tvær verslunarmiðstöðvar og í annarri voru nokkrar skóbúðir en í hinni voru bara skóbúðir, á tveimur hæðum. Að sjálfsögðu gengu eistun tímabundið upp og ég splæsti í eitt par á 35 pund en þyrfti að reiða fram 10.000 kall hér heima. Bara ef þú ert þarna í nágrenninu Sara mín!
Sara sagði…
Vá hvað þetta hljómar vel.... ég er bara ansi hrædd um að ég gæti ekki valið mér BARA eitt par ;o)

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Arnar er í heimsókn hjá okkur núna
Aftur mætt á bloggið! Þá er Íslandsförinni lokið og ég hef nógan tíma til að sitja yfir þessu bloggi aftur. Það var nú mjög gott að koma heim aftur en þó líka doldið einmanalegt þegar ég fór með Fannar á leikskólann í gær..... aftur orðin ein! Edda vinkona er komin á fullt í vinnu þannig að það er ekki hægt að bögga hana lengur yfir daginn.... það er þó stutt í nýja fjölskyldumeðliminn þannig að það verður bráðum nóg að gera. Helgi er á fullu núna að pæla í bílakaupum.... ég kann ekkert á þessi mál þannig að hann grúskar einn í þessu - hann sýnir mér samt myndir bara svona til að fá samþykki mitt hehehe. Skilyrðin eru þó þau að við kaupum sjálfskiptan station bíl með loftkælingu. Erum með einn Opel Omega í sigtinu núna og fer hann líklega að skoða hann á morgunn.... spennandi! Það er strax búið að bóka gistipláss hjá okkur í febrúar.... endalaus gestagangur hjá okkur :) en það eru Raggi og Munda sem ætla að kíkja til okkar. Hlökkum að sjálfsögðu til að fá þau í heimsókn....
Eins og þið flest líklega vitið er litla prinsessan fædd.... lítil snúlla sem hefur fengið nafnið Sandra Ósk. Hún ákvað að drífa sig í heiminn aðfaranótt 3. október. Hún var að flýta sér svo mikið að ljósmóðirin sem tók á móti henni náði ekki einu sinni að skrá mig inn á fæðingardeildina áður en hún fæddist. Þessar ljósmæður verða alltaf jafn hissa hversu fljót þessi börn mín eru að koma í heiminn..... Fannar er rosalega stoltur af systur sinni. Nefnir nokkrum sinnum á dag hversu lítil og sæt honum finnst hún. Viktor aftur á móti hefur verið í smá baráttu um athygli en virðist þó vera farinn að sætta sig við hlutina núna. Hann er samt voða góður við hana og vill endalaust knúsa og kyssa hana. Allt gengur vel að öðru leyti. Sandra drekkur vel og sefur mikið.... alveg eins og það á að vera þegar maður er svona pínulítill. Hún er rosalega vær og góð.... algjör snúlla :) Fyrsta baðið - 6 daga gömul