Fara í aðalinnihald
Fannar fékk inniskó í skóinn í morgun.

Fannar: Mamma, þessir inniskór eru til í H&M. Þetta eru inniskórnir sem þú vildir ekki kaupa!

Ég: Já, ætli jólasveinninn hafi farið í H&M og keypt þá þar?

Fannar: Já, jólasveinninn er nefnilega bara maður sem klæðir sig í jólasveinaföt. Á Íslandi eru 13 menn sem klæða sig í jólasveinaföt en hér er bara einn.

Ummæli

Guðlaug sagði…
Hahahaha!!! :D
Algjør snilld!

Ein vika...
Nafnlaus sagði…
Haha en fyndið. Ásdís lenti í sambærilegu í morgun því jólasveinninn hennar gaf henni sokkabuxur og þegar hún var að skoða þær segir hún "mamma, hann keypti þær í H&M". Greinilegt að jóli notfærir sér þá verslun, sniðugur karl :)
Kv.
g.
Arnar Thor sagði…
Stundum klippir jólasveinninn sem þjónustar þetta svæði hérna, miðana í burtu og kannski eru umbúðir fjarlægðar.

Gaman að þessu...Sveinki færði mínum börnum stækkunargler í morgun. Magnaður kappi...eitthvað sem þau höfðu óskað sér. Hann heyrir stundum ótrúlega vel.

kveðja,

Arnar Thor
Sara sagði…
Það vill nú svo til að jólasveinninn var búinn að hugsa út í merkimiða og umbúðir. Hann er ekki alvitlaus þessi sveinki :) Það er bara drengurinn sem er svo klár ;)
Nafnlaus sagði…
Allar umbúðir voru farnar, þetta var miðinn með þvottaleiðbeiningunum hehe. Annars er hann eitthvað nískur á prumpuslímið... mikið beðið eftir því!
g

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Arnar er í heimsókn hjá okkur núna
Aftur mætt á bloggið! Þá er Íslandsförinni lokið og ég hef nógan tíma til að sitja yfir þessu bloggi aftur. Það var nú mjög gott að koma heim aftur en þó líka doldið einmanalegt þegar ég fór með Fannar á leikskólann í gær..... aftur orðin ein! Edda vinkona er komin á fullt í vinnu þannig að það er ekki hægt að bögga hana lengur yfir daginn.... það er þó stutt í nýja fjölskyldumeðliminn þannig að það verður bráðum nóg að gera. Helgi er á fullu núna að pæla í bílakaupum.... ég kann ekkert á þessi mál þannig að hann grúskar einn í þessu - hann sýnir mér samt myndir bara svona til að fá samþykki mitt hehehe. Skilyrðin eru þó þau að við kaupum sjálfskiptan station bíl með loftkælingu. Erum með einn Opel Omega í sigtinu núna og fer hann líklega að skoða hann á morgunn.... spennandi! Það er strax búið að bóka gistipláss hjá okkur í febrúar.... endalaus gestagangur hjá okkur :) en það eru Raggi og Munda sem ætla að kíkja til okkar. Hlökkum að sjálfsögðu til að fá þau í heimsókn....
Eins og þið flest líklega vitið er litla prinsessan fædd.... lítil snúlla sem hefur fengið nafnið Sandra Ósk. Hún ákvað að drífa sig í heiminn aðfaranótt 3. október. Hún var að flýta sér svo mikið að ljósmóðirin sem tók á móti henni náði ekki einu sinni að skrá mig inn á fæðingardeildina áður en hún fæddist. Þessar ljósmæður verða alltaf jafn hissa hversu fljót þessi börn mín eru að koma í heiminn..... Fannar er rosalega stoltur af systur sinni. Nefnir nokkrum sinnum á dag hversu lítil og sæt honum finnst hún. Viktor aftur á móti hefur verið í smá baráttu um athygli en virðist þó vera farinn að sætta sig við hlutina núna. Hann er samt voða góður við hana og vill endalaust knúsa og kyssa hana. Allt gengur vel að öðru leyti. Sandra drekkur vel og sefur mikið.... alveg eins og það á að vera þegar maður er svona pínulítill. Hún er rosalega vær og góð.... algjör snúlla :) Fyrsta baðið - 6 daga gömul