Fara í aðalinnihald

allir farnir

Þá erum við aftur orðin ein í kotinu. Gutti og Magga fóru í morgun og mamma og pabbi á mánudaginn. Það verður alltaf svo tómlegt hérna þegar gestir eru nýfarnir.

Mamma og pabbi einbeittu sér að litlu strákunum á meðan þau voru hér. Þau voru meira að segja svo heppin að sjá Fannar keppa í fótbolta. Auðvitað var líka horft á júróvisíon og fengum við íslenskt nammi með til að gera kvöldið enn skemmtilegra :) Eitt fannst mér áberandi við keppnina í ár.... það var púað svo mikið.... sérstaklega ef Grikkir fengu ekki "nógu" mörg stig! Svo var líka púað yfir Litháenska laginu (það var nú líka ömurlegt en samt....) og svo má nú ekki gleyma Silvíu Nótt. Ekki finnst mér þetta íþróttamannslegt!!! Any way...... Fannar náði ekki að halda sér vakandi yfir alla keppnina en hann varð virkilega kátur daginn eftir þegar hann fékk að vita hverjir sigurvegararnir voru.... enda mikill Lordi aðdáandi :)

Gutti og Magga voru að koma til Stokkhólms í fyrsta skipti og notuðu því tímann í að skoða miðbæinn aðeins, versla ódýrt og fara í tívolíið (Gröna Lund). Helgi var ekki í fríi þannig að hann vann á daginn og svo eyddum við kvöldunum saman. Gaman að hafa ykkur hjá okkur... takk æðislega fyrir samveruna :)

Ummæli

Guðlaug sagði…
Æðislegt hjá ykkur! Og það er nú stutt í næstu gesti. Svo fæ ég að sjá rúmlega 50% af ykkur í sumar ;););)

Love, litla sys
Nafnlaus sagði…
Hvaða voða rólegheit eru þetta í blogginu......ekkert að ske? Sæl veriði annars héðan af Flókagötunni. Við erum á leið í sumarfrí til Búlgaríu á fimmtudaginn og sjáum kannski einhvert ykkar einhverntímann......hver veit????????? Bestustu kveðjur og margir kossar******* Gróa.

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Arnar er í heimsókn hjá okkur núna
Aftur mætt á bloggið! Þá er Íslandsförinni lokið og ég hef nógan tíma til að sitja yfir þessu bloggi aftur. Það var nú mjög gott að koma heim aftur en þó líka doldið einmanalegt þegar ég fór með Fannar á leikskólann í gær..... aftur orðin ein! Edda vinkona er komin á fullt í vinnu þannig að það er ekki hægt að bögga hana lengur yfir daginn.... það er þó stutt í nýja fjölskyldumeðliminn þannig að það verður bráðum nóg að gera. Helgi er á fullu núna að pæla í bílakaupum.... ég kann ekkert á þessi mál þannig að hann grúskar einn í þessu - hann sýnir mér samt myndir bara svona til að fá samþykki mitt hehehe. Skilyrðin eru þó þau að við kaupum sjálfskiptan station bíl með loftkælingu. Erum með einn Opel Omega í sigtinu núna og fer hann líklega að skoða hann á morgunn.... spennandi! Það er strax búið að bóka gistipláss hjá okkur í febrúar.... endalaus gestagangur hjá okkur :) en það eru Raggi og Munda sem ætla að kíkja til okkar. Hlökkum að sjálfsögðu til að fá þau í heimsókn....
Eins og þið flest líklega vitið er litla prinsessan fædd.... lítil snúlla sem hefur fengið nafnið Sandra Ósk. Hún ákvað að drífa sig í heiminn aðfaranótt 3. október. Hún var að flýta sér svo mikið að ljósmóðirin sem tók á móti henni náði ekki einu sinni að skrá mig inn á fæðingardeildina áður en hún fæddist. Þessar ljósmæður verða alltaf jafn hissa hversu fljót þessi börn mín eru að koma í heiminn..... Fannar er rosalega stoltur af systur sinni. Nefnir nokkrum sinnum á dag hversu lítil og sæt honum finnst hún. Viktor aftur á móti hefur verið í smá baráttu um athygli en virðist þó vera farinn að sætta sig við hlutina núna. Hann er samt voða góður við hana og vill endalaust knúsa og kyssa hana. Allt gengur vel að öðru leyti. Sandra drekkur vel og sefur mikið.... alveg eins og það á að vera þegar maður er svona pínulítill. Hún er rosalega vær og góð.... algjör snúlla :) Fyrsta baðið - 6 daga gömul