Fara í aðalinnihald
Nú er heimilislífið farið að falla í hefðbundna rútínu. Helgi kominn á fullt í vinnunni, Fannar byrjaði í skólanum á mánudaginn og Viktor fer á leikskólann. Viktor er hættur með bleiu... gekk ótrúlega hratt og vel. Hann hefur verið þurr á morgnana líka en við látum hann samt enn sofa með bleiu til öryggis.

Við fórum í skottúr til Finnlands síðustu helgi. Tókum ferju á föstudagskvöldið, sigldum alla nóttina, eyddum laugardeginum í múmíndalnum og sigldum svo til baka um kvöldið. Vorum komin aftur til Stokkhólms snemma á sunnudagsmorgun. Mjög skemmtileg ferð en líka frekar erfið... við sváfum ekki mikið þessa helgi. Þurftum að vakna klukkan 5 á laugardagsmorgni og 5.30 á sunnudeginum. Notuðum því sunnudaginn til að skiptast á að sofa :) Við fórum í þessa ferð með leikskólanum hans Viktors. Það var ein mamman sem tók það að sér að skipuleggja allt saman..... gott framtak :)

Við Sandra byrjum aftur í ungbarnasundi á morgun. Hlakka mikið til. Litla snúllan er svo dugleg i vatninu og nýtur sín í botn.

Best að enda þetta með smá myndaseríu :)

Viktor að taka í hendina á Múmínmömmu.

Sandra mjög hissa á þessum skrípaleik.....

... en samt kát með þetta allt saman.

Fannar að fara að sofa í ferjunni... fékk að velja efri koju :)

Ein mynd í lokin af Söndru á leið upp tröppurnar, hún er sko ekki lengi að stinga af!

Ummæli

Nafnlaus sagði…
Æ hvað það er gott að fá fréttir og sjá myndir. Við vorum ekki heima í kvöld, vorum að taka á móti fyrstu gestunum. En ég hringi í þig á morgun ;)

Love,
litla sys
Gróa sagði…
Gaman að sjá myndir :)
Gott að heyra að allt gengur vel.

Bestu kveðjur til allra.

Gróa.
Nafnlaus sagði…
Hæ Sara og familý,
Kíkti við. Gaman að sjá að allir braggist vel.
Bið að heilsa frá Horsens.
kv, Friðrik og family

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Arnar er í heimsókn hjá okkur núna
Aftur mætt á bloggið! Þá er Íslandsförinni lokið og ég hef nógan tíma til að sitja yfir þessu bloggi aftur. Það var nú mjög gott að koma heim aftur en þó líka doldið einmanalegt þegar ég fór með Fannar á leikskólann í gær..... aftur orðin ein! Edda vinkona er komin á fullt í vinnu þannig að það er ekki hægt að bögga hana lengur yfir daginn.... það er þó stutt í nýja fjölskyldumeðliminn þannig að það verður bráðum nóg að gera. Helgi er á fullu núna að pæla í bílakaupum.... ég kann ekkert á þessi mál þannig að hann grúskar einn í þessu - hann sýnir mér samt myndir bara svona til að fá samþykki mitt hehehe. Skilyrðin eru þó þau að við kaupum sjálfskiptan station bíl með loftkælingu. Erum með einn Opel Omega í sigtinu núna og fer hann líklega að skoða hann á morgunn.... spennandi! Það er strax búið að bóka gistipláss hjá okkur í febrúar.... endalaus gestagangur hjá okkur :) en það eru Raggi og Munda sem ætla að kíkja til okkar. Hlökkum að sjálfsögðu til að fá þau í heimsókn....
Eins og þið flest líklega vitið er litla prinsessan fædd.... lítil snúlla sem hefur fengið nafnið Sandra Ósk. Hún ákvað að drífa sig í heiminn aðfaranótt 3. október. Hún var að flýta sér svo mikið að ljósmóðirin sem tók á móti henni náði ekki einu sinni að skrá mig inn á fæðingardeildina áður en hún fæddist. Þessar ljósmæður verða alltaf jafn hissa hversu fljót þessi börn mín eru að koma í heiminn..... Fannar er rosalega stoltur af systur sinni. Nefnir nokkrum sinnum á dag hversu lítil og sæt honum finnst hún. Viktor aftur á móti hefur verið í smá baráttu um athygli en virðist þó vera farinn að sætta sig við hlutina núna. Hann er samt voða góður við hana og vill endalaust knúsa og kyssa hana. Allt gengur vel að öðru leyti. Sandra drekkur vel og sefur mikið.... alveg eins og það á að vera þegar maður er svona pínulítill. Hún er rosalega vær og góð.... algjör snúlla :) Fyrsta baðið - 6 daga gömul