Fara í aðalinnihald
Hér fáið þið loksins myndir af fótbrotna karlinum

Þessar myndir voru teknar fyrsta daginn

Bræðurnir að horfa á barnaefni með sitt hvorn pezkarlinn :)

Hlutirnir ganga bara nokkuð vel. Viktor aðlagast gifsinu vel. Hann skríður um allt á rassinum og sveiflar fætinum fram og tilbaka. Það þarf að minna hann á að hann fær ekki að stíga í fótinn því stundum vill hann standa upp. Á þriðjudaginn fórum við í heimsókn á leikskólann. Við erum núna búin að plana að hann fari aftur á leikskólann á mánudaginn. Það ætti að ganga vel... það þarf bara að passa að gifsið blotni ekki og að Viktor stigi ekki í fótinn.

Sandra situr í tröppunni. Hún labbar út um allt þessa dagana. Er ansi völt en er á fullu að æfa sig.... sbr. videó-ið að neðan.


Ummæli

Nafnlaus sagði…
Váá hvað ég er ánægð með Njarðvíkur litinn á gifsinu!!! Fékk Helgi að velja?? Gott að allt gengur þolanlega. Sandra sæt svona völt og fín ;-)
kv Munda
Guðlaug sagði…
Rosalega er hann flottur með gifsið - gott að þetta gengur vel. Æðislega gaman að sjá video af Söndru LABBA!! Til hamingju með hana :o*

Takk fyrir að setja svona fínar myndir og video á netið. Gerir fjarlægðina aðeins þolanlegri. Nú styttist í að við verðum lengra en í klukkutíma flugfjarlægð. Það mun nú samt ekki stoppa okkur í að koma til ykkar.

Love,
litla sys
Nafnlaus sagði…
Það er aldeilis líf í tuskunum hjá ykkur og nóg að gera! Ég sem ætlaði að fara að stinga upp á kaffihúsaferð á næstunni...vona bara það besta, að snáðinn grói fljótt og vel og að við hittumst áður en langt um líður.
Flott litla skvísan, bara farin að "hlaupa" um. Ef marka má breytinguna hér þegar Hekla Sól fór að skríða þá get ég rétt ímyndað mér hvernig þetta er hjá ykkur mæðgum...friðurinn úti!!! Heyrumst fljótlega
kær kveðja Linda

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Arnar er í heimsókn hjá okkur núna
Aftur mætt á bloggið! Þá er Íslandsförinni lokið og ég hef nógan tíma til að sitja yfir þessu bloggi aftur. Það var nú mjög gott að koma heim aftur en þó líka doldið einmanalegt þegar ég fór með Fannar á leikskólann í gær..... aftur orðin ein! Edda vinkona er komin á fullt í vinnu þannig að það er ekki hægt að bögga hana lengur yfir daginn.... það er þó stutt í nýja fjölskyldumeðliminn þannig að það verður bráðum nóg að gera. Helgi er á fullu núna að pæla í bílakaupum.... ég kann ekkert á þessi mál þannig að hann grúskar einn í þessu - hann sýnir mér samt myndir bara svona til að fá samþykki mitt hehehe. Skilyrðin eru þó þau að við kaupum sjálfskiptan station bíl með loftkælingu. Erum með einn Opel Omega í sigtinu núna og fer hann líklega að skoða hann á morgunn.... spennandi! Það er strax búið að bóka gistipláss hjá okkur í febrúar.... endalaus gestagangur hjá okkur :) en það eru Raggi og Munda sem ætla að kíkja til okkar. Hlökkum að sjálfsögðu til að fá þau í heimsókn....
Eins og þið flest líklega vitið er litla prinsessan fædd.... lítil snúlla sem hefur fengið nafnið Sandra Ósk. Hún ákvað að drífa sig í heiminn aðfaranótt 3. október. Hún var að flýta sér svo mikið að ljósmóðirin sem tók á móti henni náði ekki einu sinni að skrá mig inn á fæðingardeildina áður en hún fæddist. Þessar ljósmæður verða alltaf jafn hissa hversu fljót þessi börn mín eru að koma í heiminn..... Fannar er rosalega stoltur af systur sinni. Nefnir nokkrum sinnum á dag hversu lítil og sæt honum finnst hún. Viktor aftur á móti hefur verið í smá baráttu um athygli en virðist þó vera farinn að sætta sig við hlutina núna. Hann er samt voða góður við hana og vill endalaust knúsa og kyssa hana. Allt gengur vel að öðru leyti. Sandra drekkur vel og sefur mikið.... alveg eins og það á að vera þegar maður er svona pínulítill. Hún er rosalega vær og góð.... algjör snúlla :) Fyrsta baðið - 6 daga gömul