Fara í aðalinnihald

Lús!

Já, þá erum við búin að prófa það!

Við erum búin að eyða öllu laugardagskvöldinu í að rífa af rúmum og þvo þvott. Þvo okkur með lúsasjampói og greiða okkur med lusagreiđu.

Ég er búin að vera að skoða í hárið á Söndru undanfarna daga af því að það gengur lús í skólanum. Og í kvöld fann ég nokkrar!! Ég hafði líka tekið eftir að hún var að klóra sér ansi mikið í hársvörðinn.

Hingað til höfum við alveg sloppið við þennan viðbjóð... en ekki í þetta skipti.

Nú vona ég að þetta er búið. Þurfum "bara" að greiða okkur með lúsagreiđu annan hvern dag í tvær vikur!!

Sent from Yahoo Mail on Android

Ummæli

Nafnlaus sagði…
OJOJOJ við höfum sem betur fer sloppið 7-9-13!!!!
Veit ekki hvernig ég myndi bregðast við, hata pöddur.

kv Munda

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Hitt og þetta

Langaði að henda inn nokkrum myndum.... Krakkarnir keyptu sér ný rúm. Helgi að setja saman rúmið hennar Söndru Tillbúið... eða næstum. Vantar bara skúffurnar undir rúmið. Sandra mjög sátt Næsta rúm sett saman Viktor líka sáttur. Hér vantar líka skúffurnar undir rúmið Sandra á sínum fyrsta leik vorsins. Missteig sig mjög ílla. Var mánuð að jafna sig en er núna komin á fullt i fótboltanum aftur Ég skaust i helgarferð til Köben á kóramót íslenskra kóra i Evrópu. Kórarnir æfðu saman och síðan voru haldnir kórtónleikar i kirkju við Strikið. Mótið endaði svo med svaka partýi um kvöldið Hér er hluti kórsins að fá sér bjór í einni pásunni Pabbi og Guðlaug sungu med Bergen kórnum. Hrikalega gaman að hitta þau .... með Völu, vínkonu í kórnum

Viktor töffari

Viktor er búinn að byðja mig um að lita á sér hárið í nokkurn tíma. Ég lét loksins eftir! Hann var alveg með á hreinu hvernig hann vildi hafa hárið. Ég fylgdi því bara hans óskum og svei mér þá ef það tókst ekki bara ágætlega.... dæmið sjálf. Litli maðurinn er alla vega mjög ánægður :) Litun í gangi   Búið að klippa og lita Mjög sáttur Læt fylgja med eina mynd av heimasætunni tekin milli jóla og nýárs

Högskolepedagogik för handledare

Loksins er kúrsinn búinn. Búið að vera mikið að gera þessa haustönn en núna eftir á að hyggja var það þess virði. Nú er ég ótrúlega ánægð að ég skellti mér í þetta :) Ein af lestrar-stundunum í haust Dimma hélt mér selskap :)