Fara í aðalinnihald

helgarfrí

Sit við tölvuna med kaffibollann. Mætti halda að ég væri Helgi… en þar sem hann er ekki heima fæ ég tækifæri til að komast að tölvunni ;) Jólin búin og allir frídagar liðnir. Nú er bara að koma sér i rútínuna aftur - skóli, vinna og frístundir. Búið að vera erfitt að snúa sólarhringnum við aftur og verið ansi þreytt í vinnunni. Ekki sofnað fyrr en hálf eitt og vaknað hálf sjö! Ætti þó að takast í næstu viku þar sem það verður fyrsta heila vinnuvikan eftir hátíðarnar.

Sandra ætlar að byrja að æfa fótbolta. Fyrsta æfingin er á morgun. Hún er búin að suða um að byrja að æfa eftir að Viktor byrjaði í haust en þá var ég búin að skrá hana í dans. Nú er dansinn búinn og tækifæri til að prufa fótboltann. Svo byrja þau bæði (Viktor og Sandra) í sundskóla á mánudaginn.

Nú er allt klárt fyrir skíðaferðalagið okkar til Idre fjäll. Förum í sportlovinu, í lok febrúar. Búin að skrá litlu krakkana i skíðaskóla… og líka sjálfa mig! Hef aldrei verið neitt sérstaklega góð á skíðum en alltaf langað til að læra meira og verða betri. Ég hlakka því mikið til að fá smá kennslu og mun fara í þrjú skipti, þrjá fyrstu dagana sem við erum þar.

Elsku mamma mín átti afmæli í gær. Að því tilefni fór ég að leita í gegnum myndasafnið að mynd af kellu til að setja inn hér. Fann ég þá þessa fínu mynd af okkur öllum saman frá því í sumar :)

Til hamingju með afmælið elsku mamma

Ummæli

Sirrý sagði…
Takk elsku dóttir mín :)

Fín mynd af okkur þarna ... skemmtileg ferð.
Knús og kveðja,
mamma

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Jólaskapið komið Hér er búið að snjóa í alla nótt og snjóar enn..... þar að auki alveg blankalogn þannig að það getur eiginlega ekki orðið jólalegra. Fannar er nú þegar búinn að henda tveimur snjóboltum í mig og var planið hans í dag að búa til fleiri. Það verður örugglega rosa stuð hjá honum í leikskólanum í dag :) Þetta barn stækkar svo mikið að hann er löngu vaxinn upp úr snjóbuxunum sínum síðan í fyrra vetur.... þær ná honum næstum upp á miðja kálfa! Það er sem sagt kominn tími til að við foreldrarnir kaupum handa honum nýjar kuldabuxur svo hann sé nú almennilega klæddur drengurinn.... ekki seinna vænna nú þegar snjórinn er kominn. Helgi var á næturvakt í nótt. Fannar tilkynnti við kvöldmatarborðið í gær að það væri bara gott að pabbi sinn væri að fara að vinna. Hann veit nefnilega að hann fær að kúra hjá mömmu sinni þegar pabbi hans er á vakt (þó hann hafi ekki nefnt það í framhaldinu :o)
Aftur mætt á bloggið! Þá er Íslandsförinni lokið og ég hef nógan tíma til að sitja yfir þessu bloggi aftur. Það var nú mjög gott að koma heim aftur en þó líka doldið einmanalegt þegar ég fór með Fannar á leikskólann í gær..... aftur orðin ein! Edda vinkona er komin á fullt í vinnu þannig að það er ekki hægt að bögga hana lengur yfir daginn.... það er þó stutt í nýja fjölskyldumeðliminn þannig að það verður bráðum nóg að gera. Helgi er á fullu núna að pæla í bílakaupum.... ég kann ekkert á þessi mál þannig að hann grúskar einn í þessu - hann sýnir mér samt myndir bara svona til að fá samþykki mitt hehehe. Skilyrðin eru þó þau að við kaupum sjálfskiptan station bíl með loftkælingu. Erum með einn Opel Omega í sigtinu núna og fer hann líklega að skoða hann á morgunn.... spennandi! Það er strax búið að bóka gistipláss hjá okkur í febrúar.... endalaus gestagangur hjá okkur :) en það eru Raggi og Munda sem ætla að kíkja til okkar. Hlökkum að sjálfsögðu til að fá þau í heimsókn....
Ég fór og heimsótti Huddinge sjukhus í gær. Fékk að fylgja eftir íslenskum sjúkraþjálfara sem vinnur þar. Hún gaf mér upp góðar upplýsingar um hvernig ég þarf að bera mig að til að fá löggildingu hér í Svíþjóð og svo erum við Edda búnar að vesenast smá í þeim málum nú í dag. Frábær tilfinning að þessir hlutir séu komnir í gang. Af því að ég er nú að tala um sjúkraþjálfun þá vil ég óska sjúkraþjálfaranum og vinkonu minni - henni Rósu - innilega til hamingju með daginn .... ég veit að hún er tryggur lesandi þessarar síðu. Nú er akkúrat vika þangað til mamma, pabbi, Guðlaug og Svenni koma í heimsókn.... mikil tilhlökkun í gangi hér á þessu heimili Að öðru leyti er ég búin að vera alveg farlama af harðsperrum undanfarna tvo daga. Hef ekki getað gengið upp og niður tröppur án þess að að finna gríðarlega til... meira að segja átt erfitt með að setjast á klósettið!!!!!!