Fara í aðalinnihald

mæðraskoðun, gestir og afmæli


Var að koma úr mæðraskoðun... allt í góðu lagi eins og vanalega. Nú fer heldur betur að styttast í þetta - bara tvær vikur eftir af fullri meðgöngu. Ég er líka aðeins farin að þreytast og finn virkilega fyrir því þegar ég er að puða eitthvað við heimilisstörfin eða þegar ég fer á æfingar. Það eru allir svo ákveðnir yfir því að þetta verði strákur þannig að þetta verður örugglega stelpa hehe.... við erum alla vega komin með hugmyndir að bæði stráka nafni og stelpu nafni :)

Raggi og Munda koma á morgun. Munda ætlar ekki að láta sér leiðast hérna... búin að vera að skoða túristaferðir og leiksýningar á netinu. Ég held að Guðrún öfundi Mundu doldið fyrir þessa heimsókn.... alla vega ekki hægt að sjá annað á commentunum undanfarið hehe ;) ... Þau hjónakornin - Guðrún og Steini - verða bara að koma til okkar í sumar. Líka miklu betra að fá að sjá sænska sumarið hérna ;)

Mótorhjólatöffarinn hann pabbi minn á afmæli í dag. Til hamingju með daginn elsku pabbi. Og Gutti - bróðir hans Helga - á líka afmæli í dag... til hamingju með daginn Gutti

Ummæli

Nafnlaus sagði…
Gott að meðgangan gengur vel. Spái stelpu en tek það fram að ég hef yfirleitt alltaf rangt fyrir mér þegar kemur að því að veðja á kyn ;o).
Öfunda R & M ekkert svakalega mikið, er bara gráti næst :(, við stefnum að sjálfsögðu að því að koma sem fyrst ekki spurning. Ágætt að láta Mundu taka þetta út áður en við mætum. Það er allavegana ljóst að þau eru að fara úr vetrarríkinu á Ísl í VETURINN í Sverige; spáin hjá ykkur er ansi cool, brrrr.
Góða skemmtun um helgina ;)
G.
Nafnlaus sagði…
Já það verður gaman að sjá vetur í Svíþjóð. Guðrún mín þú ert ekki búin að svara mér, ætlar þú að skutla okkur í fyrramálið? HMMM? Get í leiðinni lánað þér vasaklút til að gráta í fögrum tárum.
KV Munda

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Hitt og þetta

Langaði að henda inn nokkrum myndum.... Krakkarnir keyptu sér ný rúm. Helgi að setja saman rúmið hennar Söndru Tillbúið... eða næstum. Vantar bara skúffurnar undir rúmið. Sandra mjög sátt Næsta rúm sett saman Viktor líka sáttur. Hér vantar líka skúffurnar undir rúmið Sandra á sínum fyrsta leik vorsins. Missteig sig mjög ílla. Var mánuð að jafna sig en er núna komin á fullt i fótboltanum aftur Ég skaust i helgarferð til Köben á kóramót íslenskra kóra i Evrópu. Kórarnir æfðu saman och síðan voru haldnir kórtónleikar i kirkju við Strikið. Mótið endaði svo med svaka partýi um kvöldið Hér er hluti kórsins að fá sér bjór í einni pásunni Pabbi og Guðlaug sungu med Bergen kórnum. Hrikalega gaman að hitta þau .... með Völu, vínkonu í kórnum

Viktor töffari

Viktor er búinn að byðja mig um að lita á sér hárið í nokkurn tíma. Ég lét loksins eftir! Hann var alveg með á hreinu hvernig hann vildi hafa hárið. Ég fylgdi því bara hans óskum og svei mér þá ef það tókst ekki bara ágætlega.... dæmið sjálf. Litli maðurinn er alla vega mjög ánægður :) Litun í gangi   Búið að klippa og lita Mjög sáttur Læt fylgja med eina mynd av heimasætunni tekin milli jóla og nýárs

Högskolepedagogik för handledare

Loksins er kúrsinn búinn. Búið að vera mikið að gera þessa haustönn en núna eftir á að hyggja var það þess virði. Nú er ég ótrúlega ánægð að ég skellti mér í þetta :) Ein af lestrar-stundunum í haust Dimma hélt mér selskap :)