Fara í aðalinnihald

fyrir ykkur sem hafið ekki alveg gefist upp :)

Er nánast búin að gefast upp á þessu bloggi. Hef hvorki tíma né orku þessa dagana. Ég lofaði nú samt elsku litlu systir að setja inn nokkrar myndir og bað hún sérstaklega um mynd af Viktori á 2ja ára afmælisdeginum. Gerðu svo vel sys :)


Þessi mynd er tekin í lok febrúar..... rétt fyrir afmælið hans Viktors

Viktor tveggja ára.... hann var mest hissa yfir afmælissöngnum (hér er einmitt verið að syngja hástöfum fyrir hann og Helgi að koma með kökuna :)

Sandra er búin að fá sinn eigin tripp trapp stól.... mikið stuð að fá að sitja til borðs með okkur hinum :)

Sandra Ósk og Viktor Snær

Fannar Már verður nú líka að fá að vera með á mynd. Hér eru þeir bræður að skoða skóginn okkar

Ummæli

Nafnlaus sagði…
Ég er ekki búin að gefast upp og skil alveg að þú hafir ekki mikin (lesist neinn) auka tíma. Teldu bara dagana í London þeir eru sko ekki margir. Annars bara fínt að frétta hér, nóg að gera í tónleikum og upplestrarkeppnum, en nú held ég að það sé komið smá hlé (vonandi).
kv Munda
p.s. 55 dagar!!
Nafnlaus sagði…
Fínar myndir!....bestur kveðjur úr roki og rigningu í kef!
Gutti og Magga :-)
Guðlaug sagði…
Takk fyrir myndirnar, elsku stóra sys!!! Þær eru æði ;o) Mikið eru Sandra og Viktor lík - algjörar dúllur. Öfunda mömmu og pabba svoooo mikið að fá að knúsa ykkur um helgina. Love you :o*
Nafnlaus sagði…
Fullur skilningur á bloggleysi, samt alltaf gaman að fá eina og eina mynd af ykkur :) Gaman að sjá börnin (og þig), litlu gormarnir tveir sverja sig svo sannarlega í föðurættina en þú átt Fannar nánast skuldlaust.
Styttist í London, verður gott, gaman og endurnærandi að hittast þar.
Guðrún

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Arnar er í heimsókn hjá okkur núna
Aftur mætt á bloggið! Þá er Íslandsförinni lokið og ég hef nógan tíma til að sitja yfir þessu bloggi aftur. Það var nú mjög gott að koma heim aftur en þó líka doldið einmanalegt þegar ég fór með Fannar á leikskólann í gær..... aftur orðin ein! Edda vinkona er komin á fullt í vinnu þannig að það er ekki hægt að bögga hana lengur yfir daginn.... það er þó stutt í nýja fjölskyldumeðliminn þannig að það verður bráðum nóg að gera. Helgi er á fullu núna að pæla í bílakaupum.... ég kann ekkert á þessi mál þannig að hann grúskar einn í þessu - hann sýnir mér samt myndir bara svona til að fá samþykki mitt hehehe. Skilyrðin eru þó þau að við kaupum sjálfskiptan station bíl með loftkælingu. Erum með einn Opel Omega í sigtinu núna og fer hann líklega að skoða hann á morgunn.... spennandi! Það er strax búið að bóka gistipláss hjá okkur í febrúar.... endalaus gestagangur hjá okkur :) en það eru Raggi og Munda sem ætla að kíkja til okkar. Hlökkum að sjálfsögðu til að fá þau í heimsókn....
Eins og þið flest líklega vitið er litla prinsessan fædd.... lítil snúlla sem hefur fengið nafnið Sandra Ósk. Hún ákvað að drífa sig í heiminn aðfaranótt 3. október. Hún var að flýta sér svo mikið að ljósmóðirin sem tók á móti henni náði ekki einu sinni að skrá mig inn á fæðingardeildina áður en hún fæddist. Þessar ljósmæður verða alltaf jafn hissa hversu fljót þessi börn mín eru að koma í heiminn..... Fannar er rosalega stoltur af systur sinni. Nefnir nokkrum sinnum á dag hversu lítil og sæt honum finnst hún. Viktor aftur á móti hefur verið í smá baráttu um athygli en virðist þó vera farinn að sætta sig við hlutina núna. Hann er samt voða góður við hana og vill endalaust knúsa og kyssa hana. Allt gengur vel að öðru leyti. Sandra drekkur vel og sefur mikið.... alveg eins og það á að vera þegar maður er svona pínulítill. Hún er rosalega vær og góð.... algjör snúlla :) Fyrsta baðið - 6 daga gömul